Fréttir

Selfoss vann 2. deild kvenna
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
miðvikudaginn 23. ágúst 2023 kl. 08:00

Selfoss vann 2. deild kvenna

Íslandsmót golfklúbba í 2. deild kvenna 2023 fór fram á Hamarsvelli í Borgarnesi dagana 18.-20. ágúst.

Alls tóku níu klúbbar þátt. Selfoss vann og leikur því í 1. deild að ári.

Leikinn var höggleikur fyrstu tvo dagana, alls 36 holur. Fjögur efstu liðin mættust í tveimur umferðum þar sem að leikin var holukeppni, einn fjórmenningur og tveir tvímenningar.

Lokastaðan:

1. Golfklúbbur Selfoss, GOS
2. Golfklúbbur Akureyrar, GA
3. Golfklúbbur Fjallabyggðar, GFB
4. Golfklúbburinn Leynir, GL
5. Golfklúbbur Borgarness, GB
6. Golfklúbbur Vatnsleysustrandar, GVS
7. Golfklúbbur Grindavíkur, GG
8. Golfklúbbur Álftaness, GÁ
9. Golfklúbburinn Esja, GE