Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 31. janúar 2025 kl. 10:26

Draumahögg hjá Írunum á Pebble Beach mótinu

Það var sannkölluð stjörnubyrjun á AT&T Pebble Beach mótinu á PGA mótaröðinni í gær. Tvö írsk draumahögg sáu dagsins ljós frá þeim félögum Rory McIlroy og Shane Lowry.

Rory var á undan og hitti „körfuhögg“ en hann „basketaði“ boltann á 15. holu á SpyGlass Hill vellinum en leikið er á honum og Pebble Beach vellinum í þessu móti.

Shane Lowry hefur verið duglegur að safna ásum á mótaröðinni. Þetta var hans þriðji síðan 2016. Þá fór hann holu í höggi á 16. braut á Masters, árið 2022 endurtók hann leikinn á hinni mögnuðu 17. holu á Sawgrass í Players mótinu og svo núna á hinni stuttu en ótrúlegu 7. holu á Pebble Beach. Brautin var rétt um 103 metrar og Lowry sló létt með 54 gráðu fleygjárninu, boltinn lenti nokkra metra frá og skoppaði svo ofan í. Þegar Lowry var spurður út í þessi þrjú draumahögg, hvað væri best, gat hann ekki svarað því. Þessar þrjár par 3 holur eru meðal þeirra frægustu í heimi.

Skorin voru góð á fyrsta keppnisdegi á mótinu, Russel Henley er í forystu á -8 en sex kylfingar eru á sjö undir pari og nokkrir á -6, m.a. Rory McIlroy.