Meistaraverk á Madeira - magnaður golfvöllur frá Faldo
„Við trúum því að þetta verði völlur sem allir kylfingar munu dreyma um að spila. Landið, klettarnir og útsýnið eru svo stórkostleg en markmið okkar var að nýta einstakt landslagið og tryggja að hver hola yrði jafn hrífandi og náttúran sjálf,“ segir sexfaldur risameistari Sir Nick Faldo sem kynnir nú nýjustu golfvallarhönnun sína en hún er á eyjunni Madeira.
Englendingurinn sem vann sex risatitla á ferlinum auk fjölda annarra móta starfaði við sjónvarp sem lýsandi eftir keppnisferilinn í næstu tuttugu ár. Hann hefur nú einbeitt sér meira að hönnun golfvalla sem hann hefur gert síðustu tvo áratugi en Faldo design hefur hannað fjölda golfvalla víða um heim. Fyrir tuttugu árum hannaði Faldo Black Sand í Þorlákshöfn en verkefnið rann út í „sandinn“ fljótlega eftir bankahrun.
Völlurinn á Madeira fékk nafnið Ponta do Pargo og mun opna árið 2026.
Hann er staðsettur á vestasta odda eyjunnar og er par-72, meistaraverk sem er mótað inn í eitt magnaðasta landslag fyrir golfvöll. Útsýnið er óviðjafnanlegt yfir Atlantshafið og meira en 180 metra hæðarmunur er á vellinum þar sem hafið leikur stórt hlutverk í öllu saman.