Fréttir

Rúnar Arnórsson nýr framkvæmdastjóri PGA á Íslandi
Rúnar Arnórsson (t.v.) tekur við af Ólafi Birni Loftssyni (t.h.). Mynd: [email protected]
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
miðvikudaginn 21. apríl 2021 kl. 18:40

Rúnar Arnórsson nýr framkvæmdastjóri PGA á Íslandi

Rúnar Arnórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri PGA á Íslandi. Hann tekur við starfinu af Ólafi Birni Loftssyni en Ólafur tók við starfi afreksstjóra GSÍ fyrr á árinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá PGA.

Rúnar hefur störf frá og með 1. maí en spennandi tímar eru framundan hjá PGA á Íslandi. Í júní stendur til að útskrifa 18 golfkennara frá golfkennaraskóla PGA og fjölgar því starfandi golfkennurum á Íslandi umtalsvert.

Rúnar mun halda áfram á sinni vegferð sem atvinnukylfingur samhliða starfinu, sem er hlutastarf, en Rúnar stefnir á að leika á Nordic mótaröðinni núna í sumar sem og GSÍ mótaröðinni hérlendis.