Fréttir

Haraldur efstur 8 undir pari
Mánudagur 27. febrúar 2023 kl. 21:13

Haraldur efstur 8 undir pari

Haraldur Franklín Magnús var áfram í stuði á 2. hring á Ecco mótaröðinni á PGA Catalunya Spáni. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður mikinn vind og kulda lék hann í dag á tveimur höggum undir pari. 

Haraldur var ánægður að leik loknum: „Þetta voru erfiðar aðstæður og boltinn flýgur styttra í svona kulda. Það var fínt að fá engan skolla í dag, en ég hefði viljað sjá fleiri fuglapútt detta. Á morgun er spáð hávaðaroki. Verður áhugaverður hringur að spila og mikil barátta. Ég hlakka til.“  

Haraldur hefur leik klukkan 9:40 að staðartíma á morgun. Hinir 5 íslendingarnir sem leika í mótinu féllu allir úr leik. Axel Bóasson lék á 72 höggum og +6 í heildina, Hákon Örn Magnússon á 74 og +8 í heildina, Elvar Kristinsson á 78 Andri Þór Björnsson á 81, báðir á +11 í heildina og Arnór Tjörvi Þórsson á 82 og +13 í heildina.

Sjá stöðuna hér.