Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Tók kylfu meðspilarans í misgripum og fór holu í höggi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 29. maí 2025 kl. 15:17

Tók kylfu meðspilarans í misgripum og fór holu í höggi

Guðmundur Arason úr GR fór holu í höggi á 6. braut Grafarholtsvallar í fyrradag. Þetta er annað draumahögg kappans en sautján ár voru á milli þeirra.

„Höggið á sjöttu holu var með 6-járni. Boltinn flaug niður á neðri pall á flötinni og rúllaði rólega í holuna. Ég miðaði á miðja flöt, en missti hann aðeins til hægri í beinni stefnu á glompuna hægra megin. En svo fór hann alla leið og endaði á réttum stað,“ segir Gummi aðspurður út í höggið en við spurðum hann einnig út í höggið fyrir sautján árum. Þar gerðust óvæntir hlutir.

„Fyrir 17 árum spilaði ég í fjögurra manna holli og Kommi Geirharðs var meðal meðspilara. Við vorum með sömu tegund af kylfum og svipaða golfpoka. Kommi sló fyrst á 2. holu og síðan teygði ég mig í pokann og sló mitt högg, sem lenti fet frá holunni og fór ofan í. Að sjálfsögðu var mikil gleði og síðan þegar ég ætlaði að stinga 9-járninu ofan í pokann var það þegar í pokanum. Ég hafði þá í misgripum tekið níuna hans Komma.“

Örninn 2025
Örninn 2025