Gunnlaugur semur við sömu umboðsskrifstofu og besti kylfingur heims
Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur skrifað undir samning við alþjóðlegu umboðsskrifstofuna Hambric Sports, sem meðal annars sér um besta kylfing heims, Scottie Scheffler. Golf.is greinir frá.
Fyrirtækið starfar með fjölda af fremstu kylfingum heims, þar á meðal Brooks Koepka, Dustin Johnson, Si Woo Kim og tvíburabræðrunum Rasmus og Nicolai Højgaard. Hambric Sports hefur verið starfrækt í 46 ár og unnið með 23 risamótasigurvegurum, til að mynda Phil Mickelson, Justin Leonard, Corey Pavin og Larry Nelson.
Umboðsmaður Gunnlaugs er Daninn Mark Haastrup, sem hefur starfað hjá fyrirtækinu í fimm ár. Hann lék áður á Evrópumótaröðinni og náði sínum besta árangri árið 2010 með tveimur þriðju sætum.
Samningurinn er mikil viðurkenning fyrir Gunnlaug Árna og mikilvægt skref á ferlinum. Samstarfið gæti opnað honum ný tækifæri bæði innan vallar sem utan.
„Ég er mjög ánægður með þessa ákvörðun eftir að hafa rætt við marga aðila. Ég hef góða tilfinningu fyrir Mark og Hambric Sports og er sannfærður um að þetta sé rétt skref. Ég hlakka til næstu ára,“ segir Gunnlaugur Árni.
Næsta mót hans fer fram á Sawgrass CC í Flórída 7.–9. mars.



