Hlynur jafn í efsta sæti og Dagbjartur jafn í 2. sæti
Hlynur Bergsson og Dagbjartur Sigurbrandsson eru í toppbaráttunni á Folksam mótinu sem fram fer á hinum kunna Barseback golfvelli í Svíþjóð á Nordic mótaröðinni. Hlynur er jafn í efsta sæti með tveimur öðrum og Dagbjartur höggi á eftir þegar einn keppnisdegi er ólokið.
Hlynur er á sjö undir pari, 69-70 en parið er 73.
Dagbjartur er á sex undir pari, 68-72.
Lokahringurinn verður á morgun, föstudag.
Þeir félagar eru í 30. og 31. sæti á stigalistanum og ef þeir halda sig í efstu sætunum þá er ljóst að þeir eru að vinna sig upp listann.


