Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Viktor Elvar ráðinn framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 22. nóvember 2026 kl. 14:30

Viktor Elvar ráðinn framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis

Viktor Elvar Viktorsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis á Akranesi og tók við starfinu 12. nóvember síðastliðinn. Viktor er öllum hnútum kunnugur hjá Leyni, enda fyrrverandi formaður klúbbsins og hefur um árabil verið virkur í félagsstarfi og mótahaldi innan íslensku golfhreyfingarinnar.

Viktor tekur við starfinu af Rakel Óskarsdóttur, sem hefur gegnt framkvæmdastjórastöðunni. Rakel mun starfa með honum út nóvember og fylgja ársreikningi félagsins úr hlaði á aðalfundi klúbbsins 25. nóvember.

Viktor hefur verið viðloðandi golfið á Akranesi frá unga aldri og starfað mikið fyrir Leynis. Hann sat í stjórn á árunum 2005 til 2010 og var formaður klúbbsins síðustu tvö árin. Þá starfaði hann í mótanefnd Leynis frá 2010 til 2018 og var meðal annars mótsstjóri Íslandsmótsins í golfi sem fram fór á Garðavelli árið 2015.

Fyrir störf sín við Íslandsmótið var Viktor útnefndur sjálfboðaliði ársins hjá Golfsambandi Íslands árið 2015.

Viktor hefur einnig komið víða við sögu hjá Golfsambandi Íslands. Hann hóf störf í mótanefnd sambandsins árið 2017, tók sæti í stjórn GSÍ árið 2019 og öðlaðist landsdómararéttindi í golfi sama ár. Hann hefur jafnframt sinnt dómgæslu og fræðslu um golfreglurnar.