Andrea með góða byrjun í lokamótinu en erfiðara hjá Ragnhildi og Huldu
Hulda Gestsdóttir átti mjög erfiðan fyrsta keppnisdag á lokamóti LET Access mótaröðinni en lokamótið fer nú fram á Islantilla golfvellinum á Spáni. Hulda lék fyrsta hringinn á átta höggum yfir pari. Andrea Bergsdóttir lék best Íslendinganna þriggja á mótinu.
Hulda sem er í 9. sæti stigalistans og eigðu möguleika á að komast í topp 7 sem hefði gefið henni sæti á LET mótaröðinni, þeirri sterkustu í Evrópu, fékk átta skolla, einn tvöfaldan skolla og tvo fugla á hringnum sem hún kláraði á 80 höggum. Hulda er jöfn í 73. sæti og þarf að bæta sig verulega til að komast í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi.
Ragnhildur Kristinsdóttir sem er í 21. sæti stigalistans lék á fjórum yfir pari og var líka í vandræðum á fyrstu tíu holunum sem hún lék á 7 yfir pari en fékk þrjá fugla á síðustu sex holunum og kom inn á 76 höggum, +4. hún er jöfn í 46. sæti.
Andrea Bergsdóttir sem er í 24. sæti stigalistans lék mjög jafnt og gott golf og kom inn á pari, fékk 16 pör, einn fugl og einn skolla. Hún er jöfn í 10. sæti.
Aðstæður voru erfiðar en aðeins níu kylfingar lék á undir pari og besta skor dagsins er 3 undir pari.


