Framkvæmdir fyrir komandi golfár
Lang flestir golfvellir landsins hafa lokað eftir langa golftíð en margir náðu fram í lok október. Margir nýta haustið og veturinn fyrir undirbúning fyrir komandi nýtt golfara og Golfklúbbur Reykjavíkur er einn þeirra en verulegar framkvæmdir hafa staðið yfir á ýmsum stöðum á vellinum.
Hér er gripið í nýlega færslu GR: „Um þessar mundir er unnið að því að ganga frá svæðinu í kringum nýju flötina á 10. holu í Grafarholti, auk þess sem tekið er til hendinni á svæðinu vinstra megin við 16. holu, sem hefur lengi verið til ama. Þegar vorar verður sáð í þessi svæði og með hækkandi sól og hlýnandi veðri munu þau smám saman taka á sig fallegri mynd. Vonir standa til að næsta sumar verði árangurinn orðinn vel sýnilegur. Nýja flötin á 10. holu verður glæsileg og flatarsvæðið allt mun setja fallegan svip á völlinn okkar.
Samhliða þessum framkvæmdum er unnið að lagningu nýrrar vatnslagnar upp í dalinn við 6. og 7. holu. Eldri lögnin, sem var orðin um 50 ára gömul, hafði að öllum líkindum fallið saman og þjónaði því ekki lengur tilgangi sínum. Með nýju lögninni verður vatnsöflun á svæðinu tryggari og möguleikar til vökvunar batna til muna. Það skiptir miklu máli, ekki síst á þurrkatímabilum þegar nauðsynlegt er að geta brugðist hratt við og tryggt næga vökvun áður en gróður verður fyrir skaða.
Á næstunni hefjast einnig framkvæmdir við gerð fleiri glompna samkvæmt hönnun Mackenzie. Þær verða tilbúnir til notkunar þegar vellirnir opna 2027.
Á Korpu er verið að undirbúa lagningu nýrra göngustíga við 11. og 16.holu. Ásamt því að drenlagnir verða lagðar í nokkrar brautir til að fyrirbyggja pollamyndun og auðvelda vatninu að fara sína réttu leið.“




