Hulda Clara lék frábærlega og varð í 4. sæti á Spáni
Hulda Clara Gestsdóttir endaði í 4. sæti Santander mótsins á LETAS mótaröðinni í Evrópu sem lauk í dag. Hún er í harðri baráttu um að vinna sér sæti á LET Evrópumótaröðinni 2027, þeirri sterkustu í Evrópu en aðeins eitt mót er eftir 2026.
Hulda Clara lék lokahringinn á 66 höggum, fimm undir pari með frábærri spilamennsku en hún var alla hringina undir pari, samtals -8 í heildina og endaði í 4. sæti. Annan daginn í röð fékk hún örn á 18. holu.
Þetta er fimmta mótið sem hún er meðal tíu efstu en Hulda sigraði á einu mótanna í sumar. Hún er áfram í 9. sæti stigalistans en 7 efstu tryggja sér þátttökurétt á LET 2027. Spennan er mikil á toppnum.
Ragnhildur Kristinsdóttir sem var með foyrstu eftir fyrsta daginn en átti erfiðan annan dag kom til baka með glæsilegum hring á fjórum undir, 67 höggum. Hún endaði í 9. sæti og er í 21. sæti stigalistans. Hún þarf líklega að sigra á lokamótinu til að komast í topp 7.
Andrea Bergsdóttir lauk leik á tveimur yfir pari á lokahringnum og á parinu í heildina. Hún er í 24. sæti stigalistans. Sæti 8-32 á stigalistanum komast beint í lokaúrtökumótið í desember.
Lokamótið fer fram á Islantilla vellinum á Spáni 18.-20. nóvember.



