Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 6. ágúst 2026 kl. 21:40

Viðtal: Elsa Maren fékk átta fugla í fyrsta hring - video

Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi er óvænt í forystu eftir fyrsta keppnisdag á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík. Elsa Maren er tuttugu og eins árs Skagamær og hefur leikið keppnisgolf undanfarin ár en aldrei verið í efsta sæti á Íslandsmóti.

Hún ræddi vallarmetshringinn upp á 67 högg við Pál Ketilsson sem spurði hana út í golfið hennar á hringnum en Skagakonan fékk sex fugla á síðustu sjö holunum.