Lokamótið leggst vel í Huldu Clöru - á möguleika á fullum keppnisrétti á LET
„Spilamennskan hefur verið fín og ég er bara að njóta þess að spila og taka eitt mót í einu. Lokamótið leggst vel í mig og það er gaman að eiga möguleika á fullu korti,“ segir Hulda Clara Gestsdóttir, atvinnukylfingur en hún verður meðal 84 kvenna sem keppa á lokamóti LET Access mótaröðinni, þeirri næst sterkustu í Evrópu. Hulda er í 9. sæti stigalistans en 7 efstu fá fullan þátttökurétt á LET Evrópumótaröðinni 2027.
„Markmiðið er samt bara að spila gott golf og sjá hverju það skilar. Ég breyti engu, heldur bý ég til mitt leikskipulag og fylgi því, eins og á öllum öðrum mótum,“ segir Hulda Clara í stuttu spjalli við kylfing.is.
Hulda er á sínu fyrsta ári sem atvinnumaður og keppandi á mótaröðinni. Henni hefur gengið mjög vel, verið fimm sinnum meðal tíu efstu og náði að sigra einu sinni. Spennan verður mikil því til mikils er að vinna. Hulda þarf að enda ofarlega til að eiga möguleika á að enda meðal sjö efstu og því ljóst að hún þarf að spila gott golf.
Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir eru einnig í 84 kvenna hópnum. Ragnhildur er í 21. sæti og Andrea í 24. sæti. Ragnhildur á fræðilega möguleika á að ná 7. sætinu ef hún vinnur mótið en líkurnar eru samt mjög litlar því stigin þyrftu að raðast á aðra keppendur henni í hag.
Islantilla golfsvæðið er vel þekkt meðal íslenskra kylfinga og hefur verið einn vinsælasti áfangastaður þeirra í 30 ár.

Islantilla golfvöllurinn.



