Andrea missti flugið í lokahringnum
Íslensku golfkonurnar á LET Access mótaröðinni hafa lokið leik en Andrea Bergsdóttir sem var í 2. sæti fyrir lokadaginn á síðasta móti ársins á Islantilla á Spáni endaði í 10.-14. sæti eftir erfiðan lokadag sem hún lék á fjórum yfir pari. Ragnhildur Kristinsdóttir endaði í jöfn í 37. sæti. Hulda Clara Gestsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn.
Þrátt fyrir að Hulda hafi ekki fengið stig í mótinu hélt hún 9. sætinu á stigalistanum.
Andrea náði ekki að leika þetta flotta golf sem hún hafði gert fyrstu tvo dagana og fékk m.a. þrefaldan skolla á eina holu og lék lokadaginn á fjórum yfir pari, 76 höggum og á parinu í heildina. Hún endaði í 23. sæti stigalistans.
Ragnhildur Kristinsdóttir endaði jöfn í 33. sæti mótsins á fimm yfir pari en hún lék síðasta hringinn á höggi undir pari. Ragga varð í 22. sæti stigalistans.
Með þessum árangri komast þær beint á lokaúrtökumótið fyrir LET mótaröðina sem verður í desember.



