Tiger Woods hannar nýjan strandvöll á Norður Írlandi
Golfvallahönnunarfyrirtækið TGR Design sem er í eigu Tiger Woods mun hanna nýjan strandvöll Bellarena Golf Links, á Causeway-ströndinni á Norður-Írlandi.
Bellarena verður fyrsti völlur TGR Design á Norður-Írlandi og fyrsti nýi völlurinn sem mun geta hýst stórmót, sem opnar á Norður-Írlandi í meira en heila öld. Með fyrirvara um samþykki skipulagsyfirvalda er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist árið 2027.
TGR Design mun færa hefðbundinni strandvallaupplifun ferska og nútímalega túlkun, þar sem náttúrulegt yfirbragð strandvallar landslagsins fær að njóta sín, og skapa vandlega úthugsaðan völl sem sameinar herkænskulega áskorun og grípandi, ánægjulega upplifun fyrir kylfinga á öllum getustigum.
„Á Norður-Írlandi eru einhverjir bestu strandvellir í heimi og það er einstakt tækifæri fyrir teymið okkar að byggja einn slíkan á Causeway-ströndinni,“ sagði Tiger Woods.
„Við viljum að Bellarena virki eins og hann hafi alltaf verið hluti af þessari strandlengju og reyni á bestu kylfingana og er skemmtilegur fyrir alla sem leika hann.“
Svæðið á norðvesturströnd Norður-Írlands, sem hefur alla burði til að verða einn tilkomumesti strandvöllur Evrópu, býður upp á óviðjafnanlegt útsýni yfir Lough Foyle og Donegal-hæðirnar og stórbrotið Binevenagh gjallið gnæfir í bakgrunni. Bellarena skipar jafnframt mikilvægan sess í sögu svæðisins. Camp Bellarena var fyrsta herstöð Bandaríkjahers á evrópskri grund í síðari heimsstyrjöldinni, þegar 151. stórskotaliðsherfylkið úr 34. fótgönguliðsherdeildinni hafði þar aðsetur.
Í samstarfi sínu sameina Galgorm Collection og Reef Destinations styrkleika sína á sviði gestrisni, golfs og uppbyggingar áfangastaða, þar sem rótgróin staða og arfleifð Galgorm Collection á Norður-Írlandi mætir sérþekkingu Reef Destinations á uppbyggingu golfáfangastaða og hýsingu atvinnumannamóta, þar á meðal Bank of Utah Championship á Black Desert Resort.
„Þessi spennandi og tímamótandi uppbygging mun efla alþjóðlegt orðspor okkar sem golfáfangastaðar í fremstu röð, laða að nýja gesti, knýja áfram verulegan hagvöxt og skapa hundruð starfa fyrir nærsamfélagið,“ segir í tilkynningu.




