Ingi Gunnar nýr formaður í Öndverðarnesi múrara – tertuspaði en ekki múrskeið í merki klúbbsins
Ingi Gunnar Þórðarson var kjörinn nýr formaður Golfklúbbs Öndverðarness á aðalfundi félagsins. Á fundinum voru jafnframt samþykkt árgjöld fyrir næsta ár og staðfest að áfram verði miðað við hámark 780 félagsmenn 26 ára og eldri. Félagafjöldinn er nú yfir þeim mörkum og því verður ekki hægt að taka inn nýja félagsmenn fyrr en ríflega 30 hafa sagt sig úr klúbbnum.
Ingi Gunnar var einn í framboði til formanns og var því sjálfkjörinn. Í aðalstjórn til tveggja ára voru kjörin Gísli Björgvinsson og Berglind Helgadóttir. Fyrir í stjórn sitja Harpa Þorláksdóttir og Þröstur Jón Sigurðsson.
Árgjald almennra félagsmanna á aldrinum 26 til 69 ára verður 127.600 krónur á næsta ári. Félagsmenn 70 ára og eldri greiða 89.320 krónur og ungmenni á aldrinum 16 til 25 ára greiða 51.040 krónur.
Árgjald öryrkja verður 76.560 krónur og barna yngri en 15 ára 24.750 krónur.
Auk árgjaldsins greiða allir félagsmenn 26 ára og eldri sérstakt skálagjald að fjárhæð 10.000 krónur. Heildargjald almenns félagsmanns á aldrinum 26 til 69 ára verður því 137.600 krónur. Golfbílagjald verður 5.000 krónur.
Ný stjórn setur reglur um biðlista
Á aðalfundinum var staðfest fyrri ákvörðun um að fjöldi félagsmanna 26 ára og eldri skuli miðast við 780. Þar sem félagafjöldinn er nú umfram það hámark verður ekki hægt að taka inn nýja félagsmenn fyrr en ríflega 30 núverandi félagar hafa sagt sig úr klúbbnum fyrir næsta ár.
Ný stjórn mun móta reglur um biðlista fyrir þá sem óska eftir aðild að Golfklúbbi Öndverðarness.
Litlar umræður urðu um skýrslu stjórnar og ársreikning á fundinum. Aðalsteinn Steinþórsson gerði þó nokkrar athugasemdir við framsetningu ársreikningsins og taldi að þar mætti gera betur.
Þröstur Eggertsson lýsti jafnframt óánægju með nýtt merki klúbbsins. Hann taldi að múrskeiðin í nýja merkinu líktist fremur tertuspaða. Í gamla merkinu væri hins vegar kastskeið, en við notkun hennar þyrfti að beita sveiflu sem væri nánast sú sama og golfsveifla.
Þakkað fyrir áralangt stjórnarstarf
Í lok fundar færði Ingi Gunnar fráfarandi stjórnarmönnum blómvendi og þakkaði þeim störf þeirra í þágu klúbbsins.
Guðlaug Þorgeirsdóttir hafði setið í aðalstjórn í 14 ár, Guðmundur Pálmason í 12 ár og Gígja Hrönn Eiðsdóttir í tvö ár.
Fundarstjóri var Garðar K. Vilhjálmsson og fundarritari Gígja Hrönn Eiðsdóttir.

Merki múraranna í Öndverðarnesi - tertuspaði í stað kastskeiðar.


