Spenna og mistök á Wentworth þegar JJ Spaun sigraði
Bandaríkjamaðurinn JJ Spaun sigraði á einu elsta móti DP Evrópumótaraðinnar á hinum sögufræga Wentworth velli í Englandi og lauk í gær.
Að minnsta kosti tíu kylfingar háðu harða baráttu um titilinn. Rory McIlroy, uppáhald flestra á Wentworth mistókst á seinni níu holunum á meðan Spaun, sem vann sinn fyrsta risatitil í fyrra á Opna bandaríska mótinu, kom aftan að mönnum á lokakaflanum og tryggði sér sigur.
Spaun endaði á 17 höggum undir pari og var tveimur höggum betri en Mcilroy, Ástralinn Adam Scott, Englendingurinn Aron Rai sem vann PGA risamótið fyrr á árinu og Spánverjinn Manuel Elvira sem gerði slæm mistök á síðustu brautinni. Hann var jafn Spaun en urðu á hrapaleg mistök þegar hann vippaði ofan í glompu þegar hann þurfti að tryggja parið og komast í bráðabana.
Fleiri risameistarar komu þremur höggum á eftir Spaun, m.a. Ryan Fox sem vann OPNA mótið í júlí og Englendingurinn Matt Fitzpatrick.


