Minni spámenn í sviðsljósinu á PGA
Minni spámenn PGA mótaraðarinn fengu sviðið í móti síðustu helgar í Asheville í Norður Ameríku á The Cliffs at Walnut Cove vellinum. All flestir liðsmenn Forsetabikarliðs Bandaríkjamanna sem keppir í Chicago í vikunni hvíldu þessa viku en þó ekki Jacob Bridgeman sem vann sitt annað mót á PGA röðinni í ár. Hann lék lokahringinn á tíu höggum undir pari eftir að hafa byrjað lokadaginn fimm höggum frá forystusauðnum og vann með tveimur höggum, á samtals 26 undir pari.
Þessi 26 ára Bandaríkjamaður var einn sex kylfinga sem Brant Snedeker valdi í Forsetaliðið og hann þakkaði traustið með því að sigra á þessu móti. Annnar minni spámaður, Jackson Koivun, sem margir telja að geti orðið einn af þeim stóru, og var einnig valinn í liðið, endaði jafn í 5. sæti en hann lauk háskólanámi í vor.
Bridgeman sem kannski er ekki einn af minni spámönnunum hefur verið atvinnumaður í fjögur ár og þetta er þriðja árið hans á PGA mótaröðinni. Hann var besti háskólakylfingurinn í lok árs 2022 og gerðist atvinnumaður síðar það ár og lék fyrst á Korn Ferry mótaröðinni sem er næsta deild fyrir neðan PGA. Á þessum fáu árum hefur hann unnið sér inn rétt rúmlega tvo milljarða króna á golfvellinum.
Þetta mót í Asheville var það fyrsta í haustmótaröð PGA þar sem kylfingar berjast nú fyrir tilverurétti sínum á mótaröðinni.



