Guðmundur Rúnar mætir með látum á LEK
Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, ellefufaldur klúbbmeistari úr Golfklúbbi Suðurnesja lék á besta skorinu á fyrsta móti Icewear LEK mótaraðarinnar. Guðmundur sem er nýliði á öldungaröðinni lék á 68 höggum en mótið var á Korpúlfsstaðavelil í Reykjavík 25. maí.
Guðmundur Rúnar hefur beðið með eftirvæntingu að hefja leik á LEK mótaröðinni og hefur æft stíft undanfarið sem sjá má á hans leik.
Í punktakeppni kvenna sigraði María M. Guðnadóttir og Ingi Þór Hermannsson karlaflokki.