Gunnar Jónsson fékk viðurkenningu frá Garðabæ og Kópavogi
Gunnar Jónsson, stjórnarmaður til margra Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, hlaut nýlega viðurkenningu fyrir framlag sitt til íþrótta- og æskulýðsstarf á íþróttahátíð Garðabæjar (10.01) og Kópavogs (15.01). Þessu er greint frá á heimsíðu GKG.
Þar segir að Gunnar hafi „verið þungavigtarmaður í félagsmálum GKG frá seinustu aldamótum. Gunnar hefur ávallt unnið afar óeigingjarnt starf til eflingar barna-, unglinga- og afreksstarfs GKG, auk þess skilað sem stjórnarmaður ómældri og mikilvægri vinnu fyrir GKG í undirbúningi og þróun til eflingar aðstöðu og aðbúnaðs allra félagsmanna, þjálfara og starfsfólks.“
Ennfremur þá var „Gunnar var formaður barna- og unglinganefndar, síðar íþróttanefndar frá árinu 2005, en lét af formennsku árið 2018 og skilaði góðu búi. Til marks um það starf sem Gunnar hefur leitt og skilað af sér þá er GKG nú í fremstu röð golfklúbba landsins hvað gróskumikið starf og afrek varðar.“
Gunnar hlaut einnig gullmerki GKG á stjórnarfundi 24. nóvember.