Fréttir

Guðmundur í öðru sæti. Spennandi helgi framundan
Föstudagur 24. febrúar 2023 kl. 07:47

Guðmundur í öðru sæti. Spennandi helgi framundan

Guðmundur Ágúst Kristjánsson GKG lauk leik á 2. hring á Hero Indian Open á DP mótaröðinni nú snemma í morgun. Hann hélt áfram að leika mjög vel og var jafn í 2. sæti þegar hann lauk leik, lék hringinn á einu höggi undir pari, 71 höggi og er alls á 5 höggum undir pari. Guðmundur hóf leik á 1. holu. Byrjaði á að fá fjögur pör en síðan komu skollar á 5. og 7., en góðir fuglar á 8. og 9. Guðmundur fékk svo fugl á 15.holu en par á öllum öðrum á seinni 9. Frábær hringur sem leikinn var af miklu öryggi.

Þetta er áttunda mótið hjá Guðmundi á tímabilinu og það þriðja í röð þar sem hann nær niðurskurðinum. Í dag fór hann út snemma svo þó nokkrir eiga enn eftir að ljúka leik. Yannik Paul frá Þýskalandi er efstur í mótinu á 10 höggum undir pari. Niðurskurðurinn í mótinu miðast eins og er við 4 högg yfir pari. Frábærlega leikið hjá Guðmundi Ágústi og gaman veður að fylgjast með honum á leika á Indlandi yfir helgina.

Fygljast má með stöðunni í mótinu hér.