Grjótbarinn golfvöllur í Grindavík
Húsatóftavöllur í Grindavík hefur fengið að finna fyrir óstuði veðurguðanna fyrstu mánuði ársins. Mikið af fjörugrjóti, stóru sem smærra hefur borist inn á golfvöllinn og í fyrstu óveðurslægðinni í janúar var sjór yfir stórum hluta á neðri parti vallarins. Þar eru fimm brautir vallarins.
Þegar fréttamenn Víkurfrétta litu við nýlega mátti sjá mikið af grjóti sem hafði borist inn á brautir og flatir. Fimmtánda flötin er nokkuð skemmd eftir að nokkur stór grjót hreinlega flugu úr fjörunni inn á flötina.
Það er ljóst að mikil vinna bíður Golfklúbbs Grindavíkur á næstu vikum að hreinsa grjótið af svæðinu.
Mikið grjót er á neðri parti vallarins, hér sést yfir stóran hluta 15. brautar. Á myndinni fyrir neðan má sjá sjór yfir sama svæði í byrjun janúar.