Haraldur er nýr framkvæmdastjóri Odds
Golfklúbburinn Oddur hefur ráðið Harald V. Haraldsson sem nýjan framkvæmdastjóra klúbbsins. Hann tekur við af Þorvaldi Þorsteinssyni sem hefur stýrt málum í Oddi síðastliðinn áratug.
Haraldur hefur langa reynslu af rekstri íþróttafélaga en hann hefur verið framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagsins Víkings undanfarin 15 ár. Meðal verkefna sem bíða nýs framkvæmdastjóra er fyrirhuguð stækkun Urriðavallar.
Að loknum aðalfundi þann 7. desember s.l. óskaði Þorvaldur Þorsteinsson framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Odds að láta af störfum. Þorvaldur hefur verið framkvæmdastjóri klúbbsins frá 2014, en hafði þá setið í stjórn klúbbsins frá 2010.
Þorvaldur mun sinna sínu starfi áfram fyrst um sinn, eða þar til Haraldur kemur til starfa. Golfklúbburinn Oddur mun svo njóta starfskrafta Þorvaldar áfram en hann hefur samþykkt að taka að sér ákveðin verkefni fyrir félagið. „Stjórn GO vill þakka Þorvaldi fyrir hans óeigingjarna og metnaðarfulla starf í gegnum árin. Upp úr standa tvö Evrópumót árin 2016 og 2022, ásamt eftirminnilegu Íslandsmóti árið 2023. Framkvæmd þessara móta þótti bera vott um einstaka fagmennsku sem Þorvaldur leiddi,“ segir í tilkynningu frá Golfklúbbnum Oddi.