Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Andrea og Ragnhildur í toppbaráttunni í Sviss
Andrea Bergsdóttir á mótinu í Sviss í dag. Hún er þremur höggum frá forystusætinu. Mynd: Letas.
Fimmtudagur 17. september 2026 kl. 17:28

Andrea og Ragnhildur í toppbaráttunni í Sviss

Íslensku atvinnugolfkonurnar á Lavaux Ladies Open á LET Access mótaröðinni í Evrópu eru í toppbaráttunni eftir tvo keppnisdaga af þremur en leikið er á Lavaux golfvellinum í Sviss.

Andrea Bergsdóttir er jöfn í 6. sæti en hún er á sjö höggum undir pari 70-67. Hún hefur fengið níu fugla og einn örn á 36 holum.

Ragnhildur Kristinsdóttir er jöfn í 14. sæti á fimm undir pari, 70-69. Hún náði átta fuglum og einum erni en báðar hafa fengið nokkra skolla.

Hulda Gestsdóttir er jöfn í 44. sæti á parinu sem var niðurskurðarlínan með 73-71.

Forystusauðurinn í mótinu er á tíu undir pari.

Staðan.

Hulda er í 5. sæti stigalistans fyrir þetta mót sem er það sjötta síðasta á keppnistíðinni. Ragga er í 14. sæti og Andrea í 23. sæti.