Hulda Clara í viðtali: Hugsaði bara um að vera ekki of stutt í lokapúttinu
„Það eina sem ég hugsaði um var að vera ekki of stutt en það var ljúft að sjá boltann detta ofan í fyrir sigrinum,“ sagði Hulda Clara Gestsdóttir, Íslandsmeistari í golfi 2024.
Kylfingur.is fylgdi lokaholli kvenna eftir í lokahringnum og hér má sjá svipmyndir úr honum og viðtal við Huldu sem m.a. ræðir um atvinnumennsku sem hún stefnir á.