Sverrir Haraldsson sigraði á unglingamóti í Bandaríkjunum
Sverrir Haraldsson, ungur og efnilegur kylfingur úr GM, gerði sér lítið fyrir og sigraði á Tour Championship mótinu sem fór fram á Premier Junior Golf mótaröðinni í Flórída um helgina.
Sverrir lék í flokki 16-18 ára. Hann lék hringina tvo samtals á höggi undir pari og sigraði að lokum með eins höggs mun eftir harða baráttu gegn Englendingnum Bayley Lewendon.
Skorkort Sverris í mótinu.
Hér er hægt að sjá lokastöðuna í mótinu.