Er Tiger að skaða arfleið sína?
Einn þekktasti umboðsmaður atvinnukylfinga, Bretinn Chubby Chandler, telur að keppnisferli Tigers Woods meðal bestu kylfinga heims sé lokið og hann muni ekki taka þátt í neinu af risamótum ársins.
Chandler segir að frekari þátttaka Tigers muni skaða hans feril og arfleifð. Hann telur að Tiger sem er orðinn 49 ára geti ekki lengur tekið þátt í sterkustu mótum ársins vegna langvarandi meiðsla. Tiger lenti í mjög alvarlegu bílslysi í febrúar 2021 og slasaðist mjög illa á hægri fæti.
„Ég efast um að Tiger verði með í risamótum ársins. Skiptir það einhverju máli lengur? Myndi ég vilja sjá hann meðal keppenda? Nei, ég held ekki,“ sagði Chandler í viðtali við Vision4Sport.
„Ef hann myndi taka þátt vona ég að hann verði þannig til heilsunnar að hann geti veitt öðrum einhverja keppni. Hafiði séð hægri fótinn á honum? Hann er ekki góður. Ég veit ekki hvað Tiger er að hugsa. Ef hann myndi hvíla og einbeita sér meira að syni sínum sem er efnilegur kylfingur, gæti hann komið síðar, þá sem eldri kylfingur og ekki með þær kröfur sem hann og aðrir setja á hann. Ég naut þess að sjá Jack Nicklaus og Arnold Palmer leika á OPNA (breska) mótinu þegar þeir voru sextugir, þá fengu þeir viðeigandi virðingu, stóðu á steinbrúnni á 18. braut á St. Andrews og veifuðu til fólks. Þannig ætti Tiger að gera þetta. Ég er alls ekki að tala niður til hans. Þegar Tom Watson vann hér um bil OPNA mótið þá 59 ára var hann í mjög góðu líkamlegu formi. Tiger er það ekki. Tiger var með endurkomu árið 2019 þegar hann vann Masters. Það var geggjað. Ef hann heldur áfram svona er hann bara að skemma arfleið sína,“ sagði Chandler.
„Ef hann heldur áfram svona er hann bara að skemma arfleið sína,“ sagði Chandler.