Mcilroy gagnrýndur fyrir ummæli - fær stórar fjárhæðir fyrir að mæta
Rory McIlroy var harðlega gagnrýndur af Kevin Kisner, atvinnukylfingi og sjónvarpsþuli í Bandaríkjunum fyrir ummæli hans um að vilja keppa á mótum víðs vegar um heiminn og fullyrðir að þau séu einungis yfirvarp fyrir þær milljónir dollara sem hann fær í þátttökuþóknun fyrir að keppa á DP World India Championship í Nýju-Delí.
McIlroy tekur nú þátt í DP World India Championship í annað sinn og mun einnig keppa í Ástralíu áður en árið er úti. Masters-meistarinn, sem hefur unnið mótið tvö ár í röð, hefur í auknum mæli lýst yfir vilja sínum til að keppa á fleiri alþjóðlegum mótum, auk ummæla sinna um heimsmótaröð, og hann hefur jafnframt hvatt fleiri bandaríska kylfinga til að keppa utan PGA-mótaraðarinnar að því er segir á IrishGolfer.
Kisner, sem hefur margsinnis sigrað á PGA-mótaröðinni en einbeitir sér nú meira að þularstarfinu frá golfmótum á CBS, telur hins vegar að ferðalöngun McIlroys um heiminn sé knúin áfram af ríflegum þátttökugjöldum.
„Þetta eru algjör skítaummæli,“ sagði Kisner í nýjasta þætti hlaðvarpsins ForePlay .
„En ætli við gætum ekki öll sagt þetta fyrir rétta upphæð.
„Hann vill ekki stækka íþróttina á heimsvísu á Indlandi, hann vill fá sínar 10 milljónir dollara og fara að spila á Indlandi.“
Þátttökuþóknanir eru stór hluti af atvinnugolfi karla og þau hjálpa mótum vissulega að tryggja sér suma af bestu kylfingum heims. Þátttökuþóknun (apperance fee) McIlroys hefur ekki verið gefið upp en almennt er talið að það sé hærra en verðlaunaféð fyrir fyrsta sætið í þessari viku, sem nemur 680.000 dollurum. Þetta var alþekkt þegar Tiger Woods var og hét.
„Ég veit af fullt af kylfingum sem fá borgað fyrir þetta mót,“ bætti Kisner við og fór mikinn í ummælum.
„Hvernig í ósköpunum ætti annars að fá menn á þetta mót á Indlandi, með átta milljarða manna, í miðri borginni?
Og Rory notar ekki einu sinni dræver í þessari viku.
Heldurðu að hann vilji spila á móti þar sem hann getur ekki notað sitt helsta vopn? Hættu nú alveg.
Þeir virðast alltaf segja réttu hlutina á meðan þeir eru þarna úti.
Sem hluti af þátttökugjaldinu þínu færðu hér handrit um óeigingirni og þú þarft að nefna þessar fjórar línur í hverju einasta viðtali sem þú veitir í vikunni.
Kisner vildi ekki vera hræsnari og viðurkenndi að ef hann væri í sporum McIlroys myndi hann glaður fylgja línunni ef hann fengi milljónir í vasann fyrir að keppa á mótum.
„Mér finnst bara sprenghlægilegt að hægt sé að skella upp móti þar sem Rory McIlroy getur ekki notað dræverinn sinn, og allir þessir gaurar mæta, og enginn segir: „jæja, þetta er fáránlegt“, en þegar þeir geta spilað á flottasta velli í heimi mætir enginn þeirra.
„Mér finnst þetta bara mjög skrýtið.“



