Hulda lék vel og endaði í 14. sæti - er í 9. sæti stigalistans
Hulda Clara Gestsdóttir lék vel á LETAS mótaröð kvenna í Evrópu sem lauk í dag á Calatayud Ladies mótinu á Gambito Calatayud golfvellinum á Spáni. Hulda endaði í 12.-14. sæti á fimm höggum undir pari og Andrea Bergsdóttir endaði jöfn í 47. sæti.
Hulda Clara er í hörku baráttu um að vinna sér sæti á LET mótaröðinni, þeirri efstu í Evrópu. Hulda lék lokahringinn á 70 höggum, tveimur undir pari og fimm undir í heildina, 70-71-70.
Andrea lék þriðja hringinn á þremur yfir pari en hina tvo fyrri á höggi undir pari, 69-74-75.
Ragnhildur Kristinsdóttir var höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn og lék hringina tvo á höggi yfir pari, 72-73.
Hulda Clara er þegar þrjú mót eru eftir á keppnistíðinni í 9. sæti stigalistans með 998.50 stig. Sjö efstu vinna sér þátttökurétt á LET mótaröðinni 2027. Hulda hefur færst aðeins niður listann að undanförnu en hún var ofar fyrr í sumar eftir sigur á einu móti. Engu að síður er hún í góðri stöðu en samkeppnin er hörð.
Ragnhildur er í 18. sæti stigalistans og Andrea Bergsdóttir í 20. sæti.



