Hulda og Andrea áfram en Ragnhildur úr leik á Spáni
Íslandsþrennan á LETAS mótaröð kvenna í Evrópu en nú við leik á Calatayud Ladies mótinu á Gambito Calatayud golfvellinum á Spáni. Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir komust í gegnum niðurskurðinn en Ragnhildur Kristinsdóttir ekki.
Hulda Clara sem er í 8. sæti á stigalistanum er á þremur undir pari eftir tvo fína hringi á 70 og 71 höggi og er jöfn í 20. sæti fyrir lokadaginn.
Andrea er á höggi undir pari. Hún lék fyrsta hringinn á þremur undir en annan hringinn tveimur yfir pari, 69-74 og er jöfn í 31. sæti fyrir lokahringinn. Andrea er í 18. sæti stigalistans.
Ragnhildur sem er í 17. sæti stigalistans var höggi frá niðurskurðinum en hún lék hingina tvo á 72 og 73 höggum.
Þetta er fjórða síðasta mót tímabilsins en sjö efstu kylfingarnir tryggja sér þátttökurétt á LET mótaröðinni í Evrópu á næsta ári.


