Dagbjartur jafn í 6. sæti - Hlynur með tvo erni á seinni níu
Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson voru meðal keppenda á Gotland Open á Nordic mótaröðinni í Svíþjóð í vikunni. Dagbjartur endaði jafn í 6. sæti og Hlynur jafn í 27. sæti.
Dagbjartur hélt áfram að leika stöðugt golf og lék hringina þrjá á fjórum höggum undir pari, 71-69-72. Hann endaði jafn í 4. sæti í móti í lok september en þetta var í sjötta sinn sem hann endar í topp 10 í ár.
Hlynur byrjaði mjög illa og lék fyrsta hringinn á 81 höggi en bætti sig um heil sextán högg í næsta hring sem hann lék á 65 höggum, sjö undir. Í hringnum fékkhann sex fugla og tvo erni, báða á seinni níu. Þriðja hringinn lék hann á 72, parinu, og endaði á +2.
Dagbjartur færði sig aðeins upp stigalistann og er nú í 23. sæti. Hlynur er í 29. sæti og Sigurður Arnar Garðarsson er í 37. sæti en hann var ekki meðal keppenda og hefur aðeins leikið í 12 mótum en félagar hans, Dagbjartur og Hlynur hafa leikið í 19 og 21 móti. Fimm efstu kylfingarnir á stigalistanum öðlast þátttökurétt á Áskorendamótaröðinni 2027, Hotel Planner Tour.


