Dagbjartur og Hlynur í 12. og 20. sæti í Danmörku
Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson enduðu í 12. og 20. sæti á Road to Europe Final by Sparekassen Danmark, lokamóti tímabilsins á Nordic Golf mótaröðinni. Leikið var á Aalborg Golfklub í Álaborg í Danmörku.
Dagbjartur lék hringina þrjá á höggi yfir pari, 74-66-72. Hann endaði í 24. sæti stigalistans en Dagbjartur var á sínu fyrsta tímabili á Nordic mótaröðinni, þeirri þriðju sterkustu í Evrópu.
Hlynur lék hringina á tveimur yfir pari, 70-73-72. Hann endaði í 29. sæti stigalistans.
Dagbjartur á enn möguleika á að vinna sér þátttökurétt á Áskorendamótaröðinni, Hotel Planner Tour, í gegnum úrtökumótin en hann vann sér þátttökurétt á 2. stigið sem fram fer 29. okt. til 1. nóv. á Spáni. Auk hans verða þar bræðurnir Sigurður Arnar og Ragnar Garðarssyni.



