Fyrsta kylfa Karenar var afsagað 3-járn með einangrunarteipi
Karen Sævarsdóttir, áttfaldur Íslandsmeistari kvenna í golfi byrjaði 4 ára í golfi og fyrsta kylfan hennar var afsagað 3-járn sem faðir hennar útbjó og gripið var einangrunarteip. „Þegar ég byrjaði í golfi var tvöfaldur skolli parið mitt,“ segir Karen Sævarsdóttir í hlaðvarpsviðtali við þá félaga Jón Júlíus Karlsson og Loga Bergmann í Seinni níu.
Karen varð Íslandsmeistari átta ár í röð, 1989-1996 og reyndi fyrir sér í atvinnumennsku strax eftir áttunda Íslandsmeistaratitilinn en Karen og Guðfinna Sigurþórsdóttir, móðir hennar eiga saman ellefu titla, Guffa var líka fyrsti Íslandsmeistari kvenna og vann þrisvar sinnum. Atvinnumennskan gekk ekki upp hjá okkar bestu konu og leið hennar lá í háskólagolf í Texas þar sem hún lék og þjálfaði síðan háskólaliðið.
Karen lék fyrst á Íslandsmóti í Leirunni 13 ára gömul og rifjar það upp í spjallinu að ein mest notaða kylfan í settinu hennar þá var 7-tré en þeir Seinni níu kappar eru líklega á prósentum í Golfskálnum því þeir halda mikið upp á 7-tré sem þeir telja ómissandi í golfpokanum.
„Ég man vel eftir þessu í mínu fyrsta Íslandsmóti í Leirunni. Ég átti ég Ben Hogan 7-tré og notaði það mjög mikið. Það var ekki auðvelt fyrir litla stelpu að slá með 4 eða 5-járni,“ rifjar Suðurnesjakylfingurinn upp.
Karen lék lengst af sem ung afrekskona með blaðkylfum, Maxfli Australian blade, en skipti yfir í meira fyrirgefandi kylfur fljótlega eftir að hún hóf háskólagolf í Bandaríkjunum.
Karen segir frá bestu lokaholum á Íslandi og mörgu öðru á flottum golfferli en hún hefur mörg undanfarin ár starfað sem golfkennari hér á landi.
Suðurnesjakonan er spurð út í draumahöggið og ótrúlegt en satt þá hefur hún ekki farið holu í höggi en oft verið mjög nálægt. „Ég er samt ekki með þetta á heilanum Logi minn,“ sagði hún í spjallinu en hann er ekki frekar en hún hafa komist í hinn magnaða Einherjaklúbb.
Kylfingur.is ræddi við mæðgurnar Guðfinnu og Karen við upphaf Íslandsmótsins í golfi í Leiru 2024. Sjá hér.

Karen og Guðfinna móðir hennar við upphaf Íslandsmótsins í golfi í Leiru 2024. Karen tók upphafshöggið í mótinu.


