Stórt ár í vændum hjá Golfklúbbi Kiðjabergs
Takmarkar meðlimafjölda við 500 manns
„Við erum komin á þann stað í meðlimafjölda að við þurfum að takmarka hann svo allir okkar meðlimir geti haft gott aðgengi að rástímum. Við viljum alls ekki lenda í þeirri aðstöðu að klúbbmeðlimir fái aldrei rástíma,” segir Þórður Rafn Gissurarson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Kiðjabergs. Mikil fjölgun hefur verið í klúbbnum undanfarin ár, það mikil að stjórnendur ákváðu að setja hámarksfjölda.
„Við nálgumst 500 klúbbmeðlimafjöldann og ætlum að segja stopp við þá tölu, þ.e. 500 meðlimi sem eru 17 ára og eldri. Börn 16 ára og yngri eru ekki inni í þessari tölu. Flestir af okkar meðlimum spila fimmtudaga til sunnudaga og ef það eru of margir um hituna að fá rástíma leiðir það til óánægju klúbbmeðlima sem við viljum koma í veg fyrir. Síðustu ár hefur talsvert færst í aukana að GKB meðlimir, sem eru einnig í golfklúbbi á höfuðborgarsvæðinu, komi líka í Kiðjaberg fyrri hluta vikunnar þar sem þeir vita að hægt sé að fá rástíma og geti spilað á góðum hraða.”
Miklar framkvæmdir
Golfklúbbur Kiðjabergs stendur í stórræðum, bæði þegar kemur að Kiðjabergsvelli og klúbbaðstöðu. Í fyrrasumar var lagt vökvunarkerfi á fyrri hluta vallarins ásamt æfingarflöt og í vor verður seinni hlutinn kláraður. Einnig verða ýmsar framkvæmdir í klúbbhúsinu en meðal þeirra verður stækkun á eldhúsi, lífgað verður upp á forstofu, matsal, o.fl. til að bæta upplifun klúbbmeðlima og gesta enn frekar.
“Við vitum að upplifun kylfinga er ekki einungis bundin við golfvöllinn heldur hefst hún þegar þeir koma að bílastæðinu og þangað til að þeir eru farnir. Það er því mikilvægt að allt í kringum golfvöllinn, þ.e. bílastæðið, klúbbhúsið, veitingaaðstaðan, æfingasvæðið, skiltin, o.s.frv. sé allt í toppstandi. Upplifun kylfinga sé líkt og þeir séu að spila erlendis og vilji koma aftur.”
Alþjóðlegt golfmót
Golfklúbbur Kiðjabergs mun einnig í fyrsta skipti halda alþjóðlegt golfmót sem eru hluti af Global Junior Golf barna- og unglingamótaröðinni.
„Dagana 16-18. júlí mun GKB halda golfmót sem er hluti af Global Junior Golf mótaröðinni en það er fyrir kylfinga hvarvetna úr heiminum sem eru 23 ára og yngri. Framtíðarstjörnur íslensks golfs fá tækifæri til að etja kappi við erlenda kylfinga og sjá hvernig þau standa gagnvart þeim. Ennfremur hjálpar slíkt mót okkar kylfingum sem hafa í huga að fara í háskólagolf erlendis þar sem margir háskólaþjálfarar fylgjast með mótaröðinni. Golfklúbbur Mosfellsbæjar, sem hefur haldið Global Junior golfmót síðustu ár mun halda sitt mót strax eftir okkar sem er frábært. Þetta eykur líkurnar að fá fleiri erlenda kylfinga til landsins og okkar kylfingar geta keppt á tveimur alþjóðlegum golfmótum í stað þess að fara erlendis á svipuð mót með tilheyrandi kostnaði.”
Miðnæturgolf
Þetta er þó ekki eina nýja alþjóðlega mótið sem Golfklúbbur Kiðjabergs stendur fyrir en klúbburinn ætlar sér að halda sérstakt miðnæturgolfmót fyrir erlenda kylfinga.
„Það eru sífellt fleiri og fleiri erlendir kylfingar farnir að heimsækja Ísland á sumrin. Við höfum allavega tekið eftir talsverðri aukningu hjá okkur. Stórt hlutfall sem vill spila miðnæturgolf. Þeim finnst það alveg frábært og ekki verra að spila Kiðjabergsvöll við slíkar aðstæður. Miðnæturmótið erum við að halda í samstarfi við Eagle Golfferðir. Það verður svipað og Stella Artois miðnæturmótið sem Golfklúbbur Reykjavíkur var með í gamla daga. Þetta verður glæsilegt mót í alla staði og vonumst við til þess að það verði að árlegum viðburði,” sagði Þórður Rafn að lokum.