Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Hulda og Ragnhildur meðal tuttugu efstu í Frakklandi
Sunnudagur 13. september 2026 kl. 21:45

Hulda og Ragnhildur meðal tuttugu efstu í Frakklandi

Hulda Gestsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir voru meðal keppenda á móti í Calais í Frakklandi á LETAS mótaröðinni. Þær enduðu í 21. og 24. sæti.

Hulda lék hringina þrjá á pari og endaði jöfn í 21. sæti, 71-71-74. Ragga var höggi á eftir og endaði jöfn í 24. sæti með hringina 71-73-73.

Nú þegar sex mót eru eftir er Hulda í 5. sæti stigalistans með 933 stig. Sjö efstu í lokin vinna sér þátttökurétt á LET mótaröðinni, þeirri sterkustu í Evrópu.

Ragnhildur er í 14. sæti með 713,65 stig.

Andrea Bergsdóttir var meðal keppenda en komst ekki í gegnum niðurskurðinn en hún er í 23. sæti stigalistans.