Leita að stað fyrir nýjan golfvöll í Hafnarfirði
Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur samþykk að stofnaður verði starfshópur sem hafi samráð við hagaðila um nýjan golfvöll í landi Hafnarfjarðar. Starfshópurinn á að finna nýjum golfvelli stað í landi Hafnarfjarðar. Það verður gert í samráði við hagsmunaaðila, þar á meðal Golfklúbbinn Keili og Golfklúbbinn Setberg. Samkvæmt upplýsingum Kylfings.is hafa forráðamenn Keilis horft til lands í nágrenni Hvaleyrarvatns.
Meginverkefni hópsins er:
- Að kanna mögulegar staðsetningar fyrir nýjan golfvöll í landi Hafnarfjarðar og koma með tillögu að staðsetningu
- Að móta tillögur um gerð vallar og fyrirkomulag rekstrar á nýjum golfvelli
Áætlað er að tillögur hópsins verði tilbúnar og þær kynntar bæjarráði í júní.
Á síðasta ári bárust bæjarráði bréf frá golfklúbbunum Keili og Setbergi þar sem þeir óskuðu eftir viljayfirlýsingu um nýja velli. Í bréfi Golfklúbbsins Keilis segir að um 4500 manns séu á biðlistum golfklúbba á höfuðborgarsvæðinu. Félagsmenn klúbbsins séu 1850 og biðlistinn lengist á hverju ári.
„Nýr golfvöllur krefst mikillar skipulagsvinnu og góðs undirbúnings sem Golfklúbburinn Keilir hefur reynslu af eftir áratuga uppbyggingu á núverandi velli, sem talinn er einn sá besti á landinu.“
Golfklúbburinn Setberg benti einnig á langan biðlista. Meðlimir væru nú 900 og hundruð bíði á hliðarlínunni.
„Golfklúbburinn Setberg leggur mikla áherslu á að koma að hugmyndavinnu við staðsetningu í nýju landi fyrir íþróttastarfsemi og golfvöll með það að markmiði að íþrótta- og útivistarf verði sem öflugast á svæðinu og í góðri sátt við íbúa og önnur félagasamtök í Hafnarfirði,“ segir þar.