Mesta áhorf á Masters í ellefu ár
Sjónvarpsáhorf á Masters 2026 var það hæsta í Bandaríkjunum í ellefu ár. Fjórtán milljón manns að meðaltali voru við skjáinn. Mótið í ár var mjög spennandi og bauð upp á frábært golf og flottar golfsveiflur en líka sveiflur í frammistöðu bestu kylfinga heims.
Gagnrýni hefur þó komið upp með myndatökuna í síðasta innáhögginu sem Rory Mcilroy sló úr skóginum á 18. og lokabraut mótsins en kylfingurinn sást ekki að framanverðu. Boltinn flaug um 135 metra með sveigju til vinstri og endaði í glompunni vinstra megin við flötina. Sjónvarpsmenn náðu ekki boltanum þegar kappinn sló og voru lengi að leita að því hvar hann endaði. Það var vissulega svolítið vandræðalegt.
Ekki er ólíklegt að áhorf hafi verið í hæstu hæðum hér á landi því þetta er alltaf og var núna sjónvarpsefni í hæstu gæðum.


