Fréttir

Rory sigraði á Fedex - fékk 4 milljarða kr. á árinu í verðlaunafé
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 29. ágúst 2022 kl. 00:23

Rory sigraði á Fedex - fékk 4 milljarða kr. á árinu í verðlaunafé

„Ég átti ekki von á því að enda sem sigurvegarinn, verandi sex höggi frá forystusætinu fyrir lokahringinn,“ sagði N-Írinn Rory McIlroy, sem sigraði á lokamóti FedEx úrslitakeppni PGA mótaraðarinnar, varð stigameistari og það í þriðja sinn. Fyrir sigurinn á FedEx fékk Rory 18 milljónir dollara eða um 2,5 milljarð. Hann er fyrsti kylfingurinn í sögu mótaraðarinnar að sigra þrisvar á FedEx.

„Scottie á eiginlega helminginn í þessum titli (FedEx) því hann hefur leikið frábærlega á árinu,“ sagði Rory sem byrjaði daginn á því að tapa höggi á fyrstu braut eftir að hafa slegið út fyrir vallarmörk. Síðan komu fjórir fuglar á næstu sex holum og þá jafnaði hann við Scottie Scheffler sem var efstur á stigalistanum fyrir mótið eftir að hafa sigrað á fjórum mótum á árinu.

Það gekk hins vegar lítið hjá Scheffler en þessir tveir bestu kylfingar í heimi um þessar mundir háðu harða baráttu fram á lokaholuna.

Rory sem hefur verið í lokaráshópi á lokamóti FedEx þrisvar síðustu fimm árin fékk eins og áður segir 18 millj. dollara fyrir sigur á FedEx, hann fékk 10 aðrar milljónir dollara fyrir mót ársins en hann keppti þó aðeins í 15 mótum. Samtals var verðlaunafé hans á árinu 28 millj. dollara eða um 4 milljarðar króna. 

Rory sigraði á FedEx 2016 og 2019 og bætti nú við þriðja titlinum, eitthvað sem enginn hefur afrekað. Rory hefur leikið frábært golf á árinu þó hann hafi ekki sigrað á risamóti en hann hefur verið í toppbaráttunni mörg undanfarin ár og hann virtist vera með aðra höndina á Opna mótinu á St. Andrews en allt kom fyrir ekki. 

Þeir félagar voru reyndar ekki bara tveir í baráttu um titilinn því Sungjae IM fylgdi þeim í lokahollinu eins og skugginn og endaði jafn Scheffler á -20 í lokamótinu.