Fréttir

PGA: Brooks Koepka varði titil sinn
Brooks Koepka eftir sigurinn í fyrra
Sunnudagur 17. júní 2018 kl. 22:13

PGA: Brooks Koepka varði titil sinn

Brooks Koepka var rétt í þessu að verja titil sinn á Opna bandaríska meistaramótinu sem lauk nú fyrir skömmu á Shinnecock Hills vellinum. Koepka endaði mótið á einu höggi yfir pari, sem er 17 höggum meira en vinningsskorið í fyrra sem var 16 högg undir par.

Fyrir lokadaginn var Koepka jafn í efsta sætinu ásamt þeim Dustin Johnson, Tony Finau og Daniel Berger. Johnson lék á parinu í dag, Finau á tveimur höggum yfir og svo lék Berger á þremur höggum yfir pari.

Koepka byrjaði daginn vel þar sem að hann fékk þrjá fugla á fyrstu fimm holunum. Þá var hann kominn með tveggja högga forystu og hann lét þá forystu aldrei af hendi. Kylfingurinn sem komst næst því að jafna við Koepka var Tommy Fleetwood en hann lauk leik tæplega þremur klukkustundum á undan lokaráshópunum. Fleetwood lék á 63 höggum og varð aðeins annar maðurinn í sögunni til að gera það á lokadeginum.

Fyrir lokaholuna var Koepka með tveggja högga forystu og kom því ekki að sök að hann fékk skolla á lokaholuna. Hann endaði því hringinn á 68 höggum, eða tveimur höggum undir pari og mótið allt á einu höggi yfir pari eins og áður sagði.

Hann er fyrsti kylfingurinn síðan árið 1989 til að vinna þetta mót tvö ár í röð en Curtis Strange vann mótið árið 1988 og 1989.

Hérna má sjá lokastöðuna í mótinu.