Fréttir

Perla Sól brýtur blað í sögu golfs á Íslandi
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
miðvikudaginn 31. júlí 2024 kl. 09:58

Perla Sól brýtur blað í sögu golfs á Íslandi

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, keppir með úrvalsliði Evrópu á PING Junior Solheim Cup sem fram fer í september á þessu ári. Perla Sól er fyrsti íslenski kylfingurinn sem er valin í úrvalslið Evrópu í þessari keppni þar sem að úrvalslið stúlkna frá Evrópu og Bandaríkjunum mætast.

„Það var mjög gaman að fá símtalið frá fyrirliða liðsins, Gwladys Nocera, í morgun þegar hún tilkynnti liðið. Það var eitt af stóru markmiðum ársins hjá mér að komast í þetta lið og ég er sjúklega ánægð með að hafa náð því. Það er mikill heiður fyrir mig að fá að vera hluti af þessu liði – og ég hlakka til að fá að upplifa þetta mót,“ sagði Perla Sól við golf.is í gær.

Keppnin fer fram dagana 9.-10. september á Army Navy Country í Arlington í Virginíufylki. Leikmenn beggja liða geta verið á aldrinum 12-18 ára. 

Keppnin fer fram dagana 9.-10. september á Army Navy Country í Arlington í Virginíufylki. En leikmenn beggja liða geta verið á aldrinum 12-18 ára. Völlurinn er einn af frægari golfvöllum Bandaríkjanna og fagnar hundrað ára afmæli á þessu ári. Flestir af forsetum Bandaríkjanna hafa verið félagar í klúbbnum.

PING Junior Solheim Cup fer fram áður en sjálfur Solheim-bikarinn, á milli Bandaríkjana og Evrópu, hefst þann 13. september á Robert Trent Jones vellinum í Virginíu í Bandaríkjunum.

Perla Sól verður 18 ára í september á þessu ári. Hún er næst yngsti sigurvegarinn á Íslandsmótinu í golfi í kvennaflokki en hún var 15 ára, 10 mánaða og 11 daga gömul þegar hún fagnaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í Vestmannaeyjum árið 2022. Hún var Evrópumeistari 16 ára og yngri árið 2022 og Íslandsmeistari í holukeppni árið 2023. Titlar hennar á Íslandsmóti unglinga í höggleik – og holukeppni eru fjölmargir.

Gwladys Nocera er fyrirliði Evrópuliðsins og valdi hún Perlu Sól í 12 manna úrvalslið þar sem að sex kylfingar tryggðu sér sæti í liðinu á stigalista en aðrir leikmenn voru valdir af Nocera.

Dewi-Claire Schreefel er varafyrirliði Evrópu.

Liðið er þannig skipað:

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Ísland
Paris Appendino, Ítalía
Sara Brentcheneff, Frakkland
Alice Kong, Frakkland
Louise Landgraf, Frakkland
Lily Reitter, Frakkland
Benedicte Brent Buchholz, Danmörk
Victoria Kristensen, Danmörk
Martina Navarro Navarro, Spánn
Andrea Revuelta, Spánn
Molly Rålin, Svíþjóð
Havanna Torstensson, Svíþjóð

Fyrst var keppt á PING Junior Solheim Cup árið 2002. Bandaríska úrvalsliðið hefur sigrað í 7 skipt af alls 11, Evrópa hefur sigrað 3 sinnum og liðin hafa einu sinni gert jafntefli, eins fram kemur á síðu Golfsambands Íslands, golf.is.