Haraldur í 46. sæti í Póllandi
Haraldur Franklín Magnús endaði jafn í 46. sæti á Rosa Challenge mótinu í Konopiska í Póllandi á Áskorendamótaröðinni í Evrópu sem lauk í dag. Haddi lék 73 holurnar á þremur yfir pari, 70-69-74-70, +3.
Hann leikur á móti í Englandi í vikunni í Reading (10.-13. sept.) og síðan í Portúgal viku síðar. Hann er í 156. sæti stigalistans og þarf mjög góða frammistöðu í þeim mótum til að eiga möguleika á að halda keppnisrétti sínum á mótaröðinni en hann hefur líka möguleika á að gera það með góðum árangri í úrtökumótum í haust.


