Yngri Stensson til Gators í háskólagolfinu
Karl Stenson hefur oft verið litli, ljóshærði strákurinn sem stillti sér upp með föður sínum, Henrik, eftir sigra hans á golfvellinum. Nú, 16 ára gamall, mun Karl næstu árin spila golf fyrir Flórídaháskóla. Annar frægur „pabba-strákur“, Luke Poulter, sonur Ian’s Poulter, er á lokaári hjá Gators og var í sigurliði Stóra-Bretlands og Írlands um síðustu helgi í Walker-bikarnum.
„Ég er afar stoltur og það er mér heiður að tilkynna að ég mun spila golf fyrir Flórídaháskóla,“ skrifaði Karl Stenson í færslu á samfélagsmiðlum. „Ég vil innilega þakka yfirþjálfaranum J.C. Deacon og aðstoðarþjálfaranum Dudley Hart fyrir tækifærið, traustið og trúna sem þeir hafa sýnt mér í gegnum þetta ferli. Ég er ótrúlega spenntur fyrir því að ganga til liðs við Gator-fjölskylduna, keppa á hæsta stigi og vera fulltrúi Flórídaháskóla bæði innan og utan vallar.“
Karl Stenson er á yngra ári í Circle Christian School í Orlando í Flórída og hefur náð góðum árangri á golfvellinum. Hann hefur að mestu keppt á mótum í Svíþjóð, heimalandi föður síns, í sumar.
Flórídaháskólinn vann NCAA-meistaramótið 2023 undir stjórn Deacon. Gators komust í holukeppnina á meistaramótinu í ár en féllu úr leik í fyrstu umferð gegn Oklahoma State. Þeir enduðu tímabilið í 3. sæti á landsvísu.
„Ég er þakklátur öllum sem hafa hjálpað mér á leiðinni og spenntur fyrir komandi verkefnum,“ skrifaði Stenson. „Áfram Gators!“
Henrik Stensson, faðir Karls, var um tíma einn besti kylfingur heims. Hann var tvisvar á ferlinum efstur á peningalista Evrópumótaraðarinnar, hann sigraði í FedEx úrslitakeppni PGA mótaraðarinnar 2013 og vann sex sinnum á PGA röðinni, m.a. á Players mótinu. Þá vann hann OPNA mótið (The Open) 2016 á eftirminnilegan hátt. Svíinn var meðal tíu bestu kylfinga heims 2007-2010. Hann var tvisvar sinnum í Ryderliði Evrópu. Henrik færði sig yfir á LIV mótaröðina 2022 en datt út af henni á þessu ári og hefur síðan keppt á öldungamótaröðinni í Evrópu.



