Casey fékk 50 milljónir kr. fyrir 2. sætið og gaf þær til fórnarlamba brunans í Sviss
S-Afríku kylfingurinn Thriston Lawrence sigraði í þriðja sinn á Omega European Masters mótinu á DP Evrópumótaröðinni sem lauk á sunnudag en það er eitt elsta og virtasta mótið á mótaröðinni. Leikið er á Cran-ssur-Sierre golfvellinum í skjóli skíðalandanna í Crans Montana. Lawrence jafnaði met Spánverjans Seve Ballesteros með þrjá sigra á mótinu.
Lawrence sem var sex höggum á eftir Englendingnum Paul Casey fyrir lokadaginn lék á átta undir pari á lokahringnum. Hann sigraði eftir bráðabana við Casey á 4. holu. Fimmtánfaldi sigurvegarinn á DP World Tour, Casey, sem býr nú í Sviss gaf allt verðlaunaféð sitt, rúmar 50 milljónir króna til Fondation Beloved, góðgerðarstofnunarinnar sem styður þá sem urðu fyrir beinum áhrifum af hörmungunum í Crans-Montana á nýársdag þegar bar brann til kaldra kola og yfir fjörutíu manns dóu og enn fleiri slösuðust.
Sá síðarnefndi gaf sitt verðlaunafé, rúmar 50 milljónir króna til fórnarlamba brunans í Crans-Montana 1. janúar sl. þegar fjöldi manns dó og margir slösuðust þegar eldur kom upp á bar.



