Bretar og Írar unnu Walker bikarinn með lokapútti mótsins
Bretar og Írar (GB&I) sigruðu Bandaríkjamenn 13,5-12,5 í Walker-bikarnum sem fór fram á Lahinch-vellinum í Írlandi um helgina. Keppnin, sem er aldargömul þar sem bestu áhugamenn þessara þjóða eigast við í holukeppni, var æsispennandi og úrslit réðust í síðasta pútti mótsins, í lokaráshópi á 18. holu, þegar Englendingurinn Josh Hill náði mögnuðum fugli og setti niður um metra langt pútt fyrir sigri í viðureign sinni og liðsins.
Keppt var í fjórum fjórmenningsleikjum fyrir hádegi á laugardag og sunnudag og í átta tvímenningsleikjum eftir hádegi báða dagana. Eftir fyrri keppnisdag leiddu Bretar og Írar með einu stigi en í fjórmenningi á sunnudag fóru Bandaríkjamenn á kostum og unnu alla fjóra leikina og leiddu því með þremur stigum fyrir síðustu umferðina.
Bretar og Írar mættu með látum í lokaumferðina, þremur stigum á eftir, og unnu fjóra fyrstu leikina og komust í forystu. Bandaríkjamenn voru leiðandi í fleiri leikjum eftir það og allt virtist stefna í sigur þeirra. Þegar tveir leikir voru eftir í mótinu og staðan 12-12, voru Bandaríkjamenn yfir í öðrum en jafnt í hinum. Þá vantaði bara hálft stig úr þessum tveimur viðureignum til að halda Walker bikarnum.
Leikirnir fóru báðir á 18. holu eins og reyndar fleiri leikir en heimamenn sýndu hvað í þeim bjó, jöfnuðu fyrri leikinn og þeir Josh Hill frá GB&I liðinu og Bandaríkjamaðurinn Tyler Watts stóðu á 18. teig jafnir og liðin einnig, 12,5-12,5. Úrslit í þeirra leik myndi úrskurða sigurvegara í þessu sögufræga móti. Watts sló inn á flöt á þessari par 5 braut í þriðja höggi og var 5 metra frá holu fyrir fugli. Hill sló annað höggið sitt í glompu um 40 metra frá stöng en það þykir eitt erfiðasta golfhöggið. Hann sló líklega högg mótsins og setti boltann um metra frá holu. Bandaríkjamaðurinn tvípúttaði og því var sigur GB&I liðsins tryggður með því að Hill setti púttið niður sem hann og gerði, við mikinn fögnuð heimamanna og átta þúsund áhorfenda sem mættu til að styðja lið GB&I.
Í liði GB&I var Luke Poulter en hann er sonur Englendingsins Ian’s Poulter sem gerði garðinn frægan með Ryderliði Evrópu. Sá „gamli“ fylgdist með mótinu á staðnum og var stráksa til aðstoðar á æfingadögunum.
Keppnin var fyrst haldin árið 1922 og Bandaríkjamenn hafa sigrað fjörutíu sinnum. Þetta var ellefti sigur GB&I og sá fyrsti síðan 2015 en einu sinni hefur endaði með jafntefli.




