Aron Snær byrjaði best Íslendinganna á úrtökumóti í Þýskalandi - Sigurður með draumahögg
Aron Snær Júlíusson er jafn í 8. sæti á þremur undir pari á fyrsta stigi úrtökumóta fyrir DP Evrópumótaröðina en hann er einn átta íslenskra kylfinga sem reyna fyrir sér á mótinu sem fram fer á Seddiner See golfvellinum í Michendorf í Þýskalandi.
Sigurður Arnar Garðarsson og Dagbjartur Sigurbransson eru báðir á höggi undir pari en sá fyrrnefndi fór holu í höggi á 17. braut vallarins í dag.
Jóhann Frank Halldórsson er á pari, Ragnar Garðarsson á +1, Logi Sigurðsson á +2, Tómast Eiríksson Hjaltested á +3 og Hlynur Bergsson er á fjórum yfir pari.
Leiknar verða 72 holur en nítján efstu og jafnir komast áfram á annað stig úrtökumótanna úr mótinu í Þýskalandi en tíu mót eru haldin fyrir fyrsta stigið. Fjögur mót eru fyrir annað stigið og verða haldin 29. okt til 1. nóvember. Lokaúrtökumótið fer fram 6.-11. nóvember.
Aron Júlíusson -3
Sigurður Arnar Garðarsson -1 (hola í höggi á 17. braut)
Dagbjartur Sigurbrandsson -1
Johann Frank Halldórsson par
Ragnar Garðarsson +1
Logi Sigurðsson +2
Tómas Eiríksson Hjaltested +3
Hlynur Bergsson +4



