Fréttir

Michael fór holu í höggi á Akranesi
Mynd af 18. holu á Garðavelli.
Fimmtudagur 14. september 2017 kl. 12:00

Michael fór holu í höggi á Akranesi

Michael Sigþórsson úr Golfklúbbnum Keili fór holu í höggi sunnudaginn 10. september 2017 á 18. flöt Garðavallar í starfsmannamóti Eimskips.

Michael notaði 6 járn af gulum teig og var stífur vindur á móti en þetta kemur fram á vef Golfklúbbsins Leynis.

Michael sá ekki boltann eða hvar hann endaði og þurfti hann að leita eftir boltanum. Hann var að vonum ánægður þegar hann fann svo boltann í holu en þetta er í fyrsta skipti sem Michael fer holu í högg eftir 25 ára golfleik.

Ísak Jasonarson
[email protected]