Í beinni: B59 Hotel mótið er hafið á Akranesi
Fyrsta mótið á GSÍ mótaröðinni
Fyrsta mótið á stigamótaröð GSÍ, B59 Hotel mótið, hófst í morgun á Garðavelli Golfklúbbsins Leynis á Akranesi. Garðavöllur kemur vel undan vetri en hann var opnaður núna í byrjun mánaðarins.
Keppnisfyrirkomulag B59 Hotel mótsins er höggleikur en leiknir verða þrír hringir á jafn mörgum dögum. Ræst verður út alla þrjá keppnisdagana frá klukkan 8:00. Eftir annan keppnisdag verður skorið niður en 70% keppenda í bæði karla og kvennaflokki komast áfram á lokahringinn.
Meðal þátttakenda á mótinu í karlaflokki eru Axel Bóasson, atvinnukylfingur úr GK og stigameistarinn frá í fyrra, Aron Snær Júlíusson úr GKG.
Meðal þátttakenda í kvennaflokki eru landsliðskylfingarnir Heiðrún Anna Hlynsdóttir úr GOS og Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir en báðar eru þær úr GR.