Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Fréttir

Taugarnar gáfu sig hjá Fleetwood - þarf enn að bíða eftir sigri
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 22. júní 2025 kl. 22:44

Taugarnar gáfu sig hjá Fleetwood - þarf enn að bíða eftir sigri

Englendingurinn Tommy Fleetwood þarf enn að bíða eftir sigri á PGA mótaröðinni en hann varð af besta tækifæri sínu til þessa þegar Keegan Bradley sem jafnframt er einvaldur Ryderliðs Bandaríkjamanna stal sigrinum á síðustu holu á Travellers mótinu í dag.

Þrípútt á síðustu holu kom í veg fyrir að Englendingurinn kæmist í bráðabana gegn Bradlay sem fékk frábæran fugl á tvær af fjórum síðustu brautunum. Fyrri fuglinn „flaug“ í holu af 15 metra færi á 15. braut. Þegar fjórar holur voru eftir af lokahringnum var Bradlay þremur höggum á eftir Fleetwood sem tapaði fjórum höggum á síðustu fjórum en Bradlay var á tveimur undir pari.

Þetta var í sjötta sinn sem Fleetwood verður annar á PGA móti í en hann er talinn vera besti kylfingurinn í heimi atvinnumanna sem hefur ekki sigrað á PGA mótaröðinni. Hann heldur þeim vafasama heiðri áfram. Bradley var hins vegar að sigra í sjötta sinn á PGA mótaröðinni en hann mun stýra Bandaríkjamönnum gegn Evrópu í Ryder bikarnum í september í New York, spurningin er nú hvort hann verði í hópi liðsmanna, ekki einvaldur. Þetta var í annað sinn sem Bradlay sigrar á þessu móti í Connecticut.

Örninn 2025
Örninn 2025

Fleetwood hafði þriggja högga forskot fyrir lokahringinn en hann lék hann á tveimur yfir pari og var ekki eins beittur og hann hafði verið fyrri þrjá keppnisdagana. Hann tapaði höggi á 16. og á 18. holu þar sem hann gerði slæm mistök.

Lokastaðan.

Fleetwood skipti um kylfu í innáhögginu á 18. holu, tók kylfu minna.