Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Aron Snær og Ragnhildur sigruðu í Korpubikarnum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 31. maí 2026 kl. 21:44

Aron Snær og Ragnhildur sigruðu í Korpubikarnum

Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR og Aron Snær Júlíusson úr GKG sigruðu í Korpubikarnum eftir spennnandi keppni, sérstaklega karlamegin en keppni lauk á Korpúlfsstaðavelli í dag við fínar aðstæður.

Ragnhildur sýndi mátt sinn og megin með leik sínum í dag og kom inn á sex höggum undir pari á lokahringnum Hún lauk leik á 11 höggum undir pari og lék síðustu 26 holurnar á -11. Hún sýndi „alvöru“ golf á lokahringnum og vann með fimm högga mun. Ef hún nær að nýta sér högglengd sína en hún var oft 40-50 metrum lengri en keppinautar sínar í dag, gæti hún átt framtíð fyrir sér meðal þeirra bestu.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR varð önnur á höggi undir pari og þær Fjóla Margrét Viðarsdóttir úr GS og Eva Kristinsdóttir úr GM urðu jafnar í 3. sæti tveimur höggum yfir pari. Perla vann fyrsta mótið og er efst á stigalistanum og Fjóla Margrét er búinn að vera í toppbaráttunni í báðum mótunum.

Það var ansi líklegt að Aron ynni Korpubikarinn en tveir Aron-ar voru tveir lang efstir þegar 18 holur voru eftir. Þrátt fyrir hrakningar á fyrstu flöt þar sem Aron Snær vippaði og þrípúttaði stutt pútt hélt hann haus og vann eftir harða keppni við nafna sinn, Aron Emil Gunnarsson frá Selfossi. Aðeins munaði tveimur höggum á þeim nöfnum í lok móts en Selfyssingurinn fékk skolla á tvær síðustu brautirnar. Aron Snær hefur unnið tvö fyrstu mót ársins og nafni hans verið í toppbaráttunni í báðum. Veigar Heiðarsson úr GA varð þriðji á -3 en fjórir kylfingar deildu 4. sætinu.

Lokastaðan.

Aron Snær á 2. teig á Korpu.

Aron Emil slær á fyrstu brautinni.

Veigar Heiðarsson varð í 3. sæti.
Ragnhildur lék frábært golf á Korpunni.
Perla Sól varð önnur.
Fjóla Margrét hefur verið í toppbaráttunni í tveimur fyrstu mótunum.